Wednesday, January 23, 2008

Glansandi byssur

Það er ekkert slor að vera að æfa í Laugum. Öll tæki og tól eru prýðileg og sturturnar fínar. Í síðustu viku áttaði ég mig á hvers vegna það er dýrara að æfa þar heldur en í baðhúsinu því sjálfur Jói Fel var við hliðina á mér að "vörka" byssurnar! Ég náttúrulega gapti af gleði og undrun og gjóaði augunum að honum í speglinum. Hann var sveittur og það stirndi á hrausta húðina. Hárið var vatns (eða svita) greitt aftur, já flottur var hann. Hraustleikinn er greinilega í ættinni því við Jói erum þremenningar og þessvegna náskyld!!
Ég veit að Særún og allar hennar vinkonur öfunda mig af því að fá að berja manninn augum í ræktinni...kannski þið ættuð að skella ykkur í Laugar og láta tjéllinguna í Baðhúsinu eiga sig?!

9 comments:

Steinunn said...

Hmmm Atli bróðir segir að maður eigi að "bera fólk augum" en ekki berja það...mér finnst flottara að berja fólk með augunum þess vegna verður það óbreytt;)

Anonymous said...

ég er alltaf að hitta lindu pé í baðhúsinu.. mér finnst hún merkilegri en jói fel

Sæja said...

Verð að viðurkenna að ég varð smá abbó þegar ég heyrði af ,,deiti" ykkur Jóa. En ég hef jafnað mig og mun halda ótrauð áfram í Baðhúsinu. Þar er mikið af iðnaðarmönnum sem stendur og gæti ég kíkt til þeirra. Þar er líka Linda Pé og er hún í nýjustu lesbísku draumum mínum við hlið Ragnhildar Steinunnar.
Nota bene, þetta eru AÐEINS draumar sem verða aldrei uppfylltir.

Sæja said...

Hahha við Brynhildur hugsum greinilega eins.

Steinunn said...

sjitt sæjan bara að koma út úr skápnum á alnetinu!!

og nei Linda P er ekki merkileg..kannski merkikerti bara..

Guðlaug Björk said...

vá maður plíííís þið eruð nú meiri beyglurnar. hahaha

Anonymous said...

Ég á engar byssur og ekkert líkamsrækarkort!!! He he he djók... ég ætti kannski að skella mér á annan hvorn staðinn og hlaupa í slow motion á einhverju hlaupabrettinu ;)Það hlýtur að vekja gleði einhvers!

Anonymous said...

Jæks..

Jói spói spýturass..

Sæja said...

You wish Steinunn.