Sunday, June 29, 2008

dúbbídú

Núna er ég útskrifuð, orðin "Steinunn Hafsteinsdóttir með BA gráðu í þroskaþjálfun". Það eina sem stendur nú í vegi fyrir framúrskarandi faglegheitum og eilítið hærri launum er starfsleifið sem ætti að vera á leiðinni með póstinum:) Það er nefnilega ekki nóg að klára 90 einingar og fá skjal frá skólanum þar sem stendur að ég hafi lokið náminu, ónei ekki svo gott! Ég þurfti að fara á lögreglustöðina og fá staðfest ljósrit af plagginu (svona svo ég mundi ekki falsa það) og síðan alla leið út á Seltjarnarnes til landlæknis svo hann gæti stimplað það fyrir mig. Það að fá manninn til að lyfta hendinni kostar litlar 5500 krónur, það væri ekki amalegt að vera á slíku kaupi, en mín hendi er náttúrulega ekki jafn merkileg og hans og tími minn klárlega ekki jafn mikilvægur! (..smá biturleiki óvart!)
London var yndisleg, við skemmtum okkur mjög vel stöllurnar:) Það er svo langt síðan að við komum heim að ég man ekkert hvað við gerðum...en ég á nokkuð mikið fleiri föt en áður en ég fór og debetkortið er mun þynnra;)
Þessa helgi hafa Rósa og Jóhanna búið með mér því Halli fór til Parísar á Blizzardráðstefnu (Nördaþing). Sambúðin hefur gengið mjög vel, Rósu virðist líka vel við mig (já Rósa er hundur) og við kúrum allar saman á næturnar.
Sumarið leggst vel í mig, það flýgur reyndar hjá aðeins of hratt! Stefni á eitthvað ferðalag næstu helgi eins og margir aðrir...vona að veðrið verði gott, mjög týpískt samt að akkúrat þá fari að rigna!

2 comments:

Anonymous said...

Takk fyrir fallegt blogg.. já henni Rósu líkar sko vel við þig, vildi meira að segja ekki sofa á mínum helming!

Takk þúsund sinnum fyrir okkur... það var yndælt að njóta þess að búa með þér í nokkra daga.

Jáhh og varðandi helgina mun verða sól og aftur sól, vittu til! :)

Anonymous said...

Vááá ömurlegi bloggari.is :)

Held þú sért bara verri en ég!!

Kv. Berglind keilu partner :)