Friday, October 19, 2007

Nýtt áhugamál

Ég hef fengið nýtt áhugamál, það heitir Facebook og er yndislegt, heldur mér upptekinni í tíma:D Finnið mig á www.facebook.com og addið mér sem vini.

Í kvöld verður stelpukvöld með Soffíu, einhver yndisleg mynd og fullt af nammi, það verður ljúft:)
Á morgun verður svo ferðafundur, ég og Gulla og 2 vinkonur hennar sem ég þekki ekki en mun gera á sunnudaginn, erum að fara til Asíu eða Suður Ameríku eða bara Antartíku. Það verður semsagt ákveðið annað kvöld:)

Annars er maður bara að drukkna í lærdómi, en það er svosem ágætt líka. Verst að ég á svo mikið efni til að horfa á en hef engan tíma til að gera það! Desember verður bara þeim mun ljúfari:D

3 comments:

Anonymous said...

Já þetta facebook er dálítið skemmtilegt.. ég þarf bara að læra betur á þetta... Halldóri finnst ég svolítið skrítin að vera með blogg, myspace og facebook ;)

Anonymous said...

hvenær er næsti pistill? Ég verð að hafa ferskan bloggrúnt meðan ég læri svona mikið

Anonymous said...

farið á norðurpólinn.. síðasti séns hann verður bráðnaður eftir 10 ár! Það gæti verið spennó